Neyðarkall til Evrópu: ESB strax!

Þetta hefði ekki orðið svona ef við hefðum Evru. Þarf nokkur að efast lengur? Við verðum að fá neyðarinngöngu í ESB og það strax! Það ætti ekki að vera neitt mál fyrir ESB við erum bara 320.000 þúsund manns - varla meira en eitt lítið sveitarfélag á meginlandi Evrópu.
mbl.is Skuldir úr 12 í 26 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðing fyrir Islam?

Fróðlegt væri að fá álit formans félags múslima á Íslandi um þetta mál - Hann getur væntanlega sanfært okkur um að þetta sé réttlátt
mbl.is 13 ára grýtt fyrir nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stúlkur, piltar - gagnkynhneigð, samkynhneigð

Hún var ótrúlega klaufaleg yfirlýsingin frá forstöðumanni barnaverndarstofu, ég held að hann skuldi okkur samkynhneigðum afsökunarbeðni.

„Þarna eru líklegast að mælast tilfelli frekar en að verið sé að stunda vændi,“ sagði Bragi. „Þarna er t.d. um að ræða samkynhneigða menn sem gefa drengjum eitthvað fyrir kynferðislegar athafnir og eins að einhverjir láta eitthvað kynferðislegt yfir sig ganga til að fá eitthvað sem þeir girnast, hvort sem það er áfengi, fíkniefni eða peningar.“

Ef við tökum út orðin piltar og samkynhneigðir og setjum stúlkur og gagnkynhneigðir - þá held ég að allt hefði orðið vitlaust og forstöðumaður barnaverndarstofu væri í vondum málum.

Þá hefði fréttin verið svona:
„Þarna eru líklegast að mælast tilfelli frekar en að verið sé að stunda vændi,“ sagði Bragi. „Þarna er t.d. um að ræða gagnkynhneigða menn sem gefa stúlkum eitthvað fyrir kynferðislegar athafnir og eins að einhverjir láta eitthvað kynferðislegt yfir sig ganga til að fá eitthvað sem þeir girnast, hvort sem það er áfengi, fíkniefni eða peningar.“


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband